Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Tempru ehf. og Plastgerðar Suðurnesja ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 23/2017
  • Dagsetning: 6/6/2017
  • Fyrirtæki:
    • Tempra ehf.
    • Plastgerð Suðurnesja ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Tempru ehf. og Plastgerðar Suðurnesja ehf. Fyrirtækin starfa bæði við framleiðslu og sölu á frauðplastkössum og frauðplasteinangrun. Frauðplastkassar eru einkum nýttir við flutning á ferskum fiski en frauðplasteinangrun er aðallega notuð við húsbyggingar.

    Um er að ræða láréttan samruna þar sem Tempra ehf. kaupir allt hlutafé í Plastgerð Suðurnesja ehf. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn hefði það í för með sér að til yrði mjög öflugt fyrirtæki með nánast einokunarstöðu á markaði fyrir framleiðslu og sölu á frauðplastkössum annars vegar og markaði fyrir framleiðslu og sölu á frauðplasteinangrun hins vegar. Þá myndi samruninn leiða til umtalsverðrar breytingar á markaðsgerðinni þar sem mikilvægur keppinautur myndi hverfa af markaði. Fæli samruninn þannig í sér alvarlega röskun á samkeppni og væri til þess fallinn að valda viðskiptavinum tjóni.

    Samrunaaðilar lögðu fram tillögur að skilyrðum til þess að vinna gegn samkeppnishömlum sem stafað gætu af samrunanum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að þessar tillögur myndu ekki duga til að koma í veg fyrir samkeppnishamlandi áhrif samrunans. Því telur eftirlitið óhjákvæmilegt að ógilda samrunann.