Samkeppni Logo

Samruni Ekrunnar ehf. og Íslenskra matvara ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Ekrunnar ehf. og Íslenskra matvara ehf. (hér eftir ÍM). Tilkynning um samrunann barst með bréfi dags. 7. júní 2017 en með bréfinu fylgdi svokölluð styttri samrunaskrá, sbr. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005 og reglur nr. 684/2008 um tilkynningu samruna með síðari breytingum. Með tölvupósti dags. 22. júní 2017 barst viðauki við samrunatilkynninguna þar sem veittar voru nánari upplýsingar um samrunann. Ekran rekur innflutnings- og verslunarfyrirtæki sem starfar á stóreldhúsamarkaði og helsta markmið félagsins er að bjóða viðskiptavinum sínum heildarlausn, m.ö.o. býður það viðskiptavinum sínum alla þá matvöru sem þeir þurfa í eldhús sín til matseldar og einnig þjónustu við sína viðskiptavini. ÍM sérhæfir sig í innflutningi á erlendum búvörum. Félagið starfar að langmestu leyti í innflutningi og heildsölu á kjöti og ostum. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

26 / 2017

Dagsetning
7. júlí 2017
Fyrirtæki

Ekran ehf.

Íslensk Matvara ehf.

Atvinnuvegir

Matvörur

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.