Samkeppni Logo

Samruni Hampiðjunnar hf. og VOOT BEITU ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Hampiðjunnar hf. og VOOT BEITU ehf.  Hampiðjan er framleiðandi á margvíslegum búnaði til fiskveiða. VOOT BEITA starfar aðallega við sölu á beitu en selur einnig línur og króka. Um er að ræða samsteypusamruna þar sem Hampiðjan kaupir meirihluta hlutafjár í VOOT BEITU.

Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

38 / 2017

Dagsetning
14. nóvember 2017
Fyrirtæki

Hampiðjan hf.

Voot Beita ehf.

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Sjávarútvegur og fiskvinnsla

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.