Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Breytingar á yfirráðum í Arcanum ferðaþjónustu ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 44/2017
  • Dagsetning: 13/12/2017
  • Fyrirtæki:
    • Arcanum ferðaþjónusta ehf.
    • Eldey TLH hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Ferðaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar breytingar á yfirráðum í Arcanum ferðaþjónustu ehf. Arcanum er ferðaskipuleggjandi sem býður upp á afþreyingu fyrir ferðamenn. Eldey TLH hf. öðlast við samrunann yfirráð í Arcanum. Eldey sinnir fjárfestingum í afþreyingargeira ferðaþjónustunnar og er í eigu fimm lífeyrissjóða, Íslandsbanka hf., Íslenskrar fjárfestingar ehf., auk fjárfesta á vegum einkabankaþjónustu Íslandsbanka. Í máli þessu verður ekki til markaðsráðandi staða og slík staða styrkist ekki, en sett hafa verið skilyrði í málinu sem ætlað er að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði framangreindra félaga gagnvart Íslandsbanka. Skilyrðin eru sett í sátt við samrunaaðila og í þeim er einnig mælt fyrir um tiltekna meðferð upplýsinga gagnvart þeim aðilum sem eiga hluti í fleiri en einu fyrirtæki á markaði. Að undangenginni rannsókn Samkeppniseftirlitsins er það niðurstaðan að umrædd skilyrði leysi þá samkeppnisbresti sem ella hefðu stafað af samrunanum.