Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Lyfja og heilsu hf. og Barkar ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 7/2018
  • Dagsetning: 21/2/2018
  • Fyrirtæki:
    • Lyf og heilsa hf.
    • Börkur ehf
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Lyfja og heilsu hf. (hér eftir Lyf og heilsa) og Barkar ehf. (hér eftir Börkur). Samruninn var tilkynntur með svokallaðri lengri samrunaskrá þann 16. janúar 2018. Samruninn felur í sér að Lyf og heilsa kaupir 100% hlutafjár í Berki. Lyf og heilsa rekur lyfjaverslanir en fyrirtækið fer jafnframt með yfirráð yfir Glerverksmiðjunni Samverk ehf. (hér eftir Glerverksmiðjan Samverk), sem framleiðir gler. Börkur er fyrirtæki sem framleiðir glugga og hurðir. Eftir rannsókn á samrunanum var það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.