Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Horns III slhf. á hlut í Bílaleigu Flugleiða ehf. sem rekur bílaleigu undir vörumerkinu Hertz á Íslandi. Starfsemi Horns III felst í fjárfestingum í hlutabréfum og öðrum fjármálagerningum, lánastarfsemi tengdri fjárfestingum og tengdum rekstri. Félagið er framtakssjóður sem stofnaður er af Landsbréfum hf., dótturfélagi Landsbankans hf. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að engin samþjöppun á sér stað á skilgreindum mörkuðum málsins í kjölfar samrunans. Sett hafa verið skilyrði í málinu sem ætlað er að tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Bílaleigu Flugleiða gagnvart Landsbankanum. Þá eru jafnframt í gildi skilyrði sem tryggja eiga sjálfstæði Landsbréfa og Horns III gagnvart Landsbankanum sbr. skilyrði sem sett voru samhliða ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 26/2016 kaup Horns III slhf. á hlut í Basko ehf. Að undangenginni rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að umrædd skilyrði leysi þá samkeppnisbresti sem ella hefðu stafað af samrunanum.
10 / 2018
Bílaleiga Flugleiða ehf.
Horn III slhf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" indicates required fields