Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Flugleiðahótela ehf. á Alda Hótel Reykjavík hf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 12/2018
  • Dagsetning: 16/4/2018
  • Fyrirtæki:
    • Flugleiðahótel ehf.
    • Alda Hótel Reykjavík hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Flugleiðahótela ehf. á Öldu hótel Reykjavík ehf. Icelandair Group hf. er móðurfélag Flugleiðahótela ehf. og rekur fyrirtækið fjölda hótela á Íslandi undir vörumerkjunum Canopy by Hilton, Hilton og Icelandair Hotels. Fyrirtækið telur sig vera með 17% hlutdeild af heildarfjölda hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu sem þeir telja vera um 5.000 samanlagt. Starfsemi Öldu hótels Reykjavík felst í rekstri eins hótels á Laugavegi og er markaðshlutdeild fyrirtækisins um 1%. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að ekki er ástæða til að ætla að samþjöppun á skilgreindum markaði þessa máls í kjölfar samrunans geti verið grundvöllur samkeppnisbresta. Þá er ekki ástæða til að ætla að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Að undangenginni rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005.