Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Sameiginlegt verkefni Samherja Íslands hf., HB Granda hf., Vísis hf. og Þorbjarnar hf. um framleiðslu á kollagen

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 13/2018
  • Dagsetning: 24/5/2018
  • Fyrirtæki:
    • Samherji hf.
    • HB Grandi hf.
    • Vísir hf.
    • Þorbjörn hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar sameiginlegt verkefni Samherja Íslands hf., HB Granda hf., Vísis hf. og Þorbjarnar hf. um framleiðslu á kollagen úr fiskroði og beinum. Hið sameiginlega verkefni felur í sér samruna í skilningi, sbr. d-lið 1. mgr. 17. gr. samkeppnislaga. Að mati samrunaaðila þá uppfyllir Collagen ehf. skilyrði til þess að teljast sjálfstæð efnahagsleg eining. Verksmiðju Collagen ehf. sé ætlað að starfa í sérstöku húsnæði óháð eigendum og að félaginu verði skipuð sjálfstæð stjórn. Þá muni Collagen ekki taka yfir neina starfsemi sem fram fari á vegum eigenda félagsins og að allar ákvarðanir um rekstur og stefnu félagsins verði teknar með sjálfstæðum hætti. Samkeppniseftirlitið telur að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.