Samkeppni Logo

Ákvörðun 17/2018, Kaup Almenna leigufélagsins ehf. á Reykjavik Apartments ehf., X459 ehf. og L56 ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Almenna leigufélagsins ehf. á Reykjavik Apartments ehf., X459 ehf. og L56 ehf. Almenna leigufélagið er félag sem hefur með höndum eignarhald og útleigu á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu til langs tíma á almennum markaði en að nokkru leiti einnig útleigu íbúðarhúsnæðis til skamms tíma til ferðamanna. X459 er eignarhaldsfélag með þrjár fasteignir í póstnúmeri 101 Reykjavík. Fasteignirnar eru allar skráðar og hannaðar sem gistiheimili. L56 er eignarhaldsfélag um fasteign í póstnúmeri 101 Reykjavík. Fasteignin er að hluta til í byggingu og hefur verið skráð og hönnuð sem gistiheimili. Reykjavik Apartments er rekstrarfélag sem rekur gistiþjónustu og tengda þjónustu fyrir ferðamenn í fasteignum X459 og hefur áform um slíkan rekstur í fasteign L56 þegar framkvæmdum verður lokið.

Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

17 / 2018

Dagsetning
4. júní 2018
Fyrirtæki

Almenna Leigufélagið ehf.

L56 ehf.

Reykjavik Apartments ehf.

X459 ehf.

Atvinnuvegir

Byggingarþjónusta

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.