Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Draupnis fjárfestingarfélags ehf. og CP Reykjavíkur ehf. Draupnir er fjárfestingarfélag sem fer með yfirráð yfir Senu ehf. Sena rekur samstæðu sem starfar á mörkuðum fyrir afþreyingu til einstaklinga. CP Reykjavík starfar við ráðstefnuhald, umsjón með viðburðum og skipulagningu hvataferða. Um er að ræða samsteypusamruna þar sem Draupnir kaupir meirihluta hlutafjár í CP Reykjavík.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.
27 / 2018
CP Reykjavík ehf.
Draupnir fjárfestingarfélag ehf.
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields