Samkeppniseftirlitið
hefur haft til umfjöllunar kaup Daga hf. (áður ISS Íslandi) á hluta af rekstri
Bragðgotts ehf. Tilgangur Daga hf. samkvæmt samþykktum þess er alhliða
ræstingarþjónusta og hvers konar þjónusta er tengist slíkum viðskiptum, kaup og
rekstur fasteigna, fasteignaumsjón, veitingaþjónusta, lánastarfsemi og annar
skyldur atvinnurekstur. Tilgangur Bragðgotts ehf. samkvæmt samþykktum er
veitingarekstur, veitingasala, rekstur fasteigna og ásamt námskeiðahaldi.
Að
undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat
Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði þar af ekki
til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á
markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur
til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr.
44/2005.
17 / 2019
Bragðgott ehf.
Dagar hf.
Matvörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" indicates required fields