Samkeppniseftirlitið
hefur haft til skoðunar kaup Motormax ehf. á eignum og rekstrarfjármunum
þrotabús Bílanausts ehf. í kjölfar gjaldþrots hins síðarnefnda. Að
undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat
Samkeppniseftirlitsins að sá samruni sem á sér stað með kaupunum hindri ekki
virka samkeppni og leiði því ekki til markaðsráðandi stöðu. Þá leiði hann ekki til
þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því
eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c.
samkeppnislaga nr. 44/2005
15 / 2019
Bílanaust ehf.
Motormax ehf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Vélar og tæki
Samrunamál
"*" indicates required fields