Samkeppniseftirlitið hefur haft til
umfjöllunar kaup Öskju ehf. (Askja) á hluta af rekstri Bernhards ehf.
(Bernhard), er snýr að umboði fyrir Honda á Íslandi. Samruninn var tilkynntur
með svokallaðri styttri samrunaskrá þann 10. maí 2019. Askja er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir
sig í innflutningi, sölu og þjónustu á bifreiðum frá Mercedes-Benz og Kia. Fyrirtækið
er til húsa að Krókhálsi í Reykjavík, þar sem meðal annars er rekið bifreiðaverkstæði,
varahlutaþjónusta og sýningarsalir fyrir fólksbifreiðar. Bernhard er
þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi, sölu og þjónustu á bifreiðum
og öðrum tækjum frá Honda. Fyrirtækið er til húsa að Vatnagörðum í Reykjavík
þar sem meðal annars er að finna bifreiðaverkstæði og sýningarsal fyrir Honda
bifreiðar.
Eftir rannsókn á samrunanum var það
niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki væru fyrir hendi forsendur til að
aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
20 / 2019
Bernhard ehf.
Bílaumboðið Askja ehf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Vélar og tæki
Samrunamál
"*" indicates required fields