Samkeppni Logo

Kaup AU4 ehf. á hlutafé í Bál ehf. og Solvent ehf. – breytt yfirráð yfir Motus og tengdum félögum

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup AU4 ehf. á hlutafé í Bál ehf. og Solvent ehf. Bál og Solvent eru einföld eignarhaldsfélög og fara þau saman með 52,08% hlut í Greiðslumiðlun Íslands ehf.  AU4 ehf. er óstofnað félag sem verður í 100% eigu félagsins Umbreyting slhf. Greiðslumiðlun Íslands ehf. heldur utan um 100% eignarhlut í Motus ehf. innheimtufyrirtæki.

Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

21 / 2019

Dagsetning
8. júlí 2019
Fyrirtæki

AU 4 ehf.

Bál ehf

Greiðslumiðlun Íslands ehf

Solvent ehf

Umbreyting slhf

Atvinnuvegir

Fjármálaþjónusta

Önnur fjármálaþjónusta

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.