Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Íbúðalánasjóðs á íbúðalánasafni af Arion banka hf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 28/2019
  • Dagsetning: 28/8/2019
  • Fyrirtæki:
    • Arion banki hf.
    • Íbúðalánasjóður
  • Atvinnuvegir:
    • Viðskiptabankaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Íbúðalánasjóðs á íbúðalánasafni Arion banka hf. Íbúðalánasjóður er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem stóð til ársins 2013 undir lánveitingum til íbúðakaupa sem fjármögnuð voru með skuldabréfaútgáfu og rekstri sem byggði á eigin tekjum. Arion banki hf. er skráð félag á hlutabréfamarkaði. Aðalstarfsemi félagsins lýtur að almennri bankaþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga. Samrunaaðilar munu gera með sér umsýslusamning sem felur í sér að Arion banki hf. sinnir áfram allri umsýslu lánasafnsins.

    Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnisaga nr. 44/2005.