Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Undanþágubeiðni Hreyfils svf. um áframhaldandi útgáfu hámarks ökutaxta

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 16/2020
  • Dagsetning: 31/3/2020
  • Fyrirtæki:
    • Hreyfill svf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Leigubílaþjónusta
  • Málefni:
    • Undanþágur
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar beiðni Hreyfils svf. um áframhaldandi undanþágu um útgáfu hámarks ökutaxta. Með heimild í 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 hefur núgildandi undanþága, sem veitt var með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 11/2019, verið framlengd til 1. apríl 2021. Var heimildin veitt með ákveðnum skilyrðum, á meðan Alþingi er með frumvarp til breytinga á lögum um leigubifreiðar til meðferðar. Verður ákvörðun þessi tekin til endurskoðunar ef til þess kemur að breytingar verða á fyrrgreindum lögum fyrir 1. apríl 2021, þ.e. áður en undanþága þessi rennur út.