Samkeppni Logo

Míla hf. og Gagnaveita Reykjavíkur ehf. Tiltekið samstarf um lagningu ljósleiðara

Reifun

Með ákvörðun nr. 18/2020, hefur Samkeppniseftirlitið heimilað Mílu hf. (Míla) og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. (GR) að eiga samstarf um lagningu ljósleiðara. Um er að ræða afmarkað verkefni í framkvæmd og tíma sem felst í því að hvort félag sér um lagningu á tveimur ljósleiðaraheimtaugum í tilteknum íbúðahverfum á Selfossi og Reykjanesbæ og selur hinu annan strenginn að verkefni loknu.

Það er markmiðið með framangreindu samstarfi að auka hagkvæmni og hagræðingu við lagningu ljósleiðara og auk þess að lágmarka ónæði og röskun sem fylgir slíkum framkvæmdum í götum og á svæðum bæjar- og sveitarfélaga. Er þess vænst að samstarfið hafi jákvæð áhrif á samkeppni og auki valkosti neytenda með því að komið verði á fót tveimur sjálfstæðum ljósleiðaranetum á þeim svæðum þar sem samningur aðila nær til. Samstarfið mun einskorðast við að nýta sömu framkvæmdir til þess að leggja tvö ljósleiðaranet sem verði tæknilega aðskilin og sjálfstæð og skapa þannig grundvöll til samkeppni um hlutaðeigandi viðskiptavini.

Samstarfið er bundið skilyrðum sem m.a. miða að því að ljósleiðaranetin sem samstarfið nær til séu tæknilega aðskilin og sjálfstæð og skapi grundvöll til samkeppni um hlutaðeigandi viðskiptavini. Einnig er skilyrðunum ætlað að tryggja að samstarfið einskorðist við þetta og feli ekki í sér neins konar samráð um aðra þætti, s.s. verð eða þjónustu til viðskiptavina.

Framangreind heimild er byggð á 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem heimildar Samkeppniseftirlitinu að veita undanþágu frá banni 10. gr. samkeppnislaga við ólögmætu samráði.

Ákvarðanir
Málsnúmer

18 / 2020

Dagsetning
14. apríl 2020
Fyrirtæki

Gagnaveita Reykjavíkur ehf.

Míla hf.

Atvinnuvegir

Fastanet (grunnnet og þjónusta)

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Málefni

Undanþágur

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.