Samkeppni Logo

Kaup Orkusölunnar ehf. og RARIK ohf. á Rafveitu Reyðarfjarðar

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Orkusölunnar ehf. og RARIK ohf. á Rafveitu Reyðarfjarðar.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að markaður sem mál þetta varðar sé einkum markaðurinn fyrir framleiðslu og sölu á raforku í smásölu annars vegar og markaðurinn fyrir dreifingu raforku hins vegar. Að mati Samkeppniseftirlitsins er landfræðilegur markaður fyrir framleiðslu og sölu á raforku Ísland, landið allt, þar sem raforkukerfið hér á landi myndar eitt net sem teygir sig um allt landið. Með vísan til umfjöllunar í ákvörðun er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að viðkomandi samruni leiði ekki til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist eða að samruninn leiði til þess að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, sbr. 17. gr. c. samkeppnislaga.

Ákvarðanir
Málsnúmer

21 / 2020

Dagsetning
7. maí 2020
Fyrirtæki

Orkusalan ehf.

Rafmagnsveitur ríkisins (RARIK)

Rafveita Reyðarfjarðar

Atvinnuvegir

Orkumál

Raforkumál (framleiðsla, flutningur, dreifing og sala)

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.