Samkeppni Logo

Samruni Hraðfrystihúss Hellissands hf. og Hiddu ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Hraðfrystihúss Hellissands hf. og Hiddu ehf. Hraðfrystihús Hellissands stundar veiðar og vinnslu á botnfiski og selur megnið af sinni framleiðslu og afurðir á erlendan markað. Hidda stundar eingöngu botnfiskveiðar og hefur enga aðkomu að vinnslu afurða.

Um er að ræða láréttan samruna þar sem Hraðfrystihús Hellissands kaupir allt hlutafé í Hiddu ehf. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

37 / 2020

Dagsetning
23. október 2020
Fyrirtæki

Hidda ehf.

Hraðfrystihús Hellissands hf.

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Sjávarútvegur og fiskvinnsla

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.