Samkeppni Logo

Kaup Crayon Group AS á öllu útgefnu hlutafé í Sensa ehf

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar Kaup Crayon Group AS á öllu útgefnu hlutafé í Sansa ehf. Samkvæmt samrunatilkynningu kemur fram að Crayon sé þjónustufyrirtæki á sviði hugbúnaðar og starfi einkum á sviði hugbúnaðarsölu- og dreifingu eignastýringar hugbúnaðar (svokölluð SAM þjónusta). Þá segir í samrunaskrá að Sensa sé þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni sem býður fyrirtækjum sérfræðiþjónustu, þ.e. kennslu og ráðgjöf í notkun skýjalausna, hugbúnaðargerð og tilbúnar hugbúnaðarlausnir, rekstrarþjónustu og hýsingu á samskipta- og innviða (e. Infrastructure) lausnum.

Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði þar af ekki til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

8 / 2021

Dagsetning
18. mars 2021
Fyrirtæki

Crayon Group AS

Sensa ehf.

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Upplýsingatækni og hugbúnaðarþjónusta

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.