Samkeppniseftirlitið tók til rannsóknar kaup Orkla ASA á 80% eignarhlut í Nóa Síríusi hf. Orkla á þegar 20% hlut í Nóa Síríusi, sbr. ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 37/2019, Kaup Orkla ASA á eignarhlut í Nóa Síríusi hf. Í fyrirhuguðum kaupum felst að Orkla mun í kjölfar þeirra eignast 100% hlut í Nóa Síríusi. Fyrirtækin starfa aðeins að hluta til á sama sviði, þ.e. markaðnum fyrir heildsölu á sælgæti, markaðnum fyrir heildsölu á snakki og markaðnum fyrir heildsölu á morgunkorni. Að mati Samkeppniseftirlitsins gaf rannsókn málsins ekki til kynna að tilefni væri til íhlutunar vegna viðskiptanna.
21 / 2021
Nói-Síríus hf
Orkla ASA
Matvörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" indicates required fields