Með ákvörðuninni var tekin afstaða til kaupa Origo hf. á 70% hlut í Eldhafi ehf. Origo hf. starfar á ýmsum sviðum upplýsingatækni og vörusölu á neytendamarkaði. Aðalstarfsemi félagsins felst í sölu neytendavöru, vélbúnaðar og tengdri þjónustu, þróun og sölu hugbúnaðar, ráðgjöf á sviði upplýsingatækni, sem og hýsingu, rekstri tölvukerfa og tengdri þjónustu. Eldhaf ehf. starfar á markaði fyrir sölu á tölvum, tölvutengdum búnaði og farsímum, einkum frá framleiðandanum Apple. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.
38 / 2021
Eldhaf ehf.
Origo hf
Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
Upplýsingatækni og hugbúnaðarþjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields