Með ákvörðuninni var tekin afstaða til kaupa Vinnslustöðvarinnar hf. á 75% hlutafjár í Hólmaskeri ehf. Vinnslustöðin hf. er útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki með fjölbreytilegan rekstur. Félagið gerir út sex skip til humar-, uppsjávar, tog- og netveiða. Hólmasker ehf. er fiskvinnslufyrirtæki, sem mun reka fiskvinnsluna, sem áður var eign Stakkholts ehf. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.
43 / 2021
Hólmasker ehf.
Vinnslustöðin hf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla
Samrunamál
"*" indicates required fields