Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Sameiginleg yfirráð Laxafoss eignarhaldsfélags ehf. og MF2 hs. í Tryggvagötu ehf. og Exeterhouse ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 44/2021
  • Dagsetning: 21/12/2021
  • Fyrirtæki:
    • Laxafoss eignarhaldsfélag ehf.
    • MF2 hs.
    • Tryggvagata ehf.
    • Exeterhouse ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Ferðaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með ákvörðuninni var tekin afstaða til sameiginlegra yfirráða Laxafoss eignarhaldsfélags ehf. og MF2 hs. í Tryggvagötu ehf. og Exeterhouse ehf. Laxafoss er eignarhaldsfélag í byggingartengdum iðnaði og MF2 er hlutdeildarsjóður. Aðalstarfsemi Tryggvagötu er leiga á atvinnuhúsnæði undir rekstur hótels og hjá Exeterhouse hótel- og veitingarekstur. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.