Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Nesfisks ehf. og Flatfisks ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 6/2022
  • Dagsetning: 24/3/2022
  • Fyrirtæki:
    • Flatfiskur ehf.
    • Nesfiskur ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Sjávarútvegur og fiskvinnsla
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með ákvörðuninni var tekin afstaða til samruna Nesfisks ehf. og Flatfisks ehf. Nesfiskur ehf. er útgerðarfélag sem rekur eigin vinnslu og flytur út fisk. Félagið á aflahlutdeildir í margvíslegum tegundum sem veiddar eru við Ísland. Flatfiskur ehf. hefur sérhæft sig í því að kaupa flatfisk á fiskmörkuðum til vinnslu og útflutnings. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.