Samkeppni Logo

Kaup Fastus ehf. á öllu hlutafé í Expert ehf., Expert kælingu ehf., 1311 heild ehf. og 50% hlut í Fossraf ehf.

Reifun

Með ákvörðuninni var tekin afstaða til samruna Fastus ehf., Expert ehf., Expert kælingu ehf., 1311 heild ehf. og Fossraf ehf. Starfsemi samrunaaðila skarast ekki með þeim hætti að tilefni var til íhlutunar. Sú starfsemi sem samruninn tók til var m.a. talin varða a) viðhalds- og viðgerðarþjónustu fyrir viðskiptavini á stórnotendamarkaði, (b) almennri rafvirkjaþjónustu við smærri raftæki, (c) sölu á klakavélum, kæliklefum og kæliskápum; frystiklefum, frystiskápum og frystiborðum ásamt kælipressum og condensum fyrir slíkar vörur og (d) sölu á tilteknum borðbúnaði. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.

Ákvarðanir
Málsnúmer

17 / 2022

Dagsetning
29. júlí 2022
Fyrirtæki

1311 heild ehf.

Expert ehf.

Expert kæling ehf.

Fastus ehf.

Fossraf ehf.

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Ýmsar neytendavörur sem ekki eru tilgreindar annars staðar (sérverslun)

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.