Samkeppni Logo

Samruni M Invest ehf. og Metatron ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna M.Invest ehf. og Metatron ehf. M. Invest er eignarhaldsfélag en Metatron er verktakafyrirtæki, en starfsemi félagsins felst aðallega í lagningu höggdeyfandi púða undir gervigras, lagningu gervigrass, hlaupabrauta, sölu yfirborðsefna innanhúss og utanhúss ásamt lýsingarlausnum fyrir íþróttamannvirki og stærri athafnarsvæði. Samrunaaðilar starfa því á ólíkum mörkuðum og enginn breyting á fjölda keppinauta á hlutaðeigandi mörkuðum og samþjöppun lítil.

Það er því niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekkert í fyrirliggjandi upplýsingum eða gögnum málsins bendi til þess að samruninn muni hafa áhrif á né raski samkeppni með umtalsverðum hætti. Af þeim sökum telur Samkeppniseftirlitið ekki ástæðu til að hafast frekar að vegna samrunans og lýkur því rannsókn málsins á fyrsta fasa.

Ákvarðanir
Málsnúmer

32 / 2023

Dagsetning
22. ágúst 2023
Fyrirtæki

M Invest ehf.

Metatron ehf.

Atvinnuvegir

Byggingarþjónusta

Verktakastarfsemi

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.