Þann 1. apríl 2009 barst Samkeppniseftirlitinu tilkynning vegna yfirtöku Þórsmerkur ehf. á Árvakri hf. í samræmi við ákvæði 17. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005. Fullnægði tilkynningin skilyrðum samkeppnislaga og reglna nr. 684/2008 um tilkynningu samruna en félögum sem ekki starfa á sömu mörkuðum er heimilt að skila styttri tilkynningu skv. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga vegna samruna. Samkeppniseftirlitið taldi ekki forsendur til þess að aðhafast frekar vegna samrunans.
18 / 2009
Árvakur hf.
Þórsmörk ehf.
Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
Prentmiðlar
Samrunamál
"*" indicates required fields