Með bréfi dags. 21. maí tilkynnti Sparisjóður Mýrarsýslu Samkeppniseftirlitinu um kaup sín á Sparisjóð Siglufjarðar. Bréfinu fylgdi samrunaskrá þar sem framsetningin var ekki í samræmi við viðauka í reglum nr. 881/2005 um tilkynningu um samruna. Fullnægjandi upplýsingar bárust með bréfi dagsettu 18. júlí, mótteknu 23. júlí. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins benti ekki til þess að röskun yrði á samkeppni vegna samruna aðila. Sá Samkeppniseftirlitið því ekki tilefni til þess að aðhafast vegna samrunans.
45 / 2007
Sparisjóður Mýrarsýslu
Sparisjóður Siglufjarðar
Fjármálaþjónusta
Viðskiptabankaþjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields