Í samrunaskrá kemur fram að Samhentir Kassagerð hf. sé þjónustufyrirtæki sem bjóði upp á heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum. Fyrirtækið starfi á umbúðamarkaði og tengdri þjónustu þar sem fyrirtækið flytji inn og selji umbúðir, rekstrarvörur og pökkunarvélar fyrir sjávarútveg, iðnaðarframleiðendur, heildsala og endursöluaðila. Starfsemi Formar ehf. felst í framleiðslu og markaðssetningu á umbúðum úr frauðplasti (e. expanded polystyrene (EPS)) fyrir flutning á sjávarfangi annars vegar og húseinangrun úr frauðplasti (EPS) hins vegar. Samandregið er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki séu forsendur til íhlutunar vegna samrunans.
7 / 2024
Formar ehf.
Samhentir Kassagerð hf.
Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" indicates required fields