Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Samkaupa hf., á Kram ehf., og Hólmgarði ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 19/2007
  • Dagsetning: 13/6/2007
  • Fyrirtæki:
    • Samkaup hf.
    • Kram ehf.
    • Hólmgarður ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Matvörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Ákvörðun 19/2007 - Kaup Samkaupa hf. á Kram ehf. og Hólmgarði ehf.

    Samkeppniseftirlitinu bárust tilkynningar um kaup Samkaupa hf. á Kram ehf. annars vegar og Hólmgarði hins vegar. Samkeppniseftirlitið taldi rétt að sameina umfjöllun um samrunana í eina ákvörðun þar sem um væri að ræða kaup Samkaupa á fyrirtækjum í svipuðum rekstri. Að mati Samkeppniseftirlitsins fólu kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og féllu samrunarnir undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gáfu ekki til kynna að samrunarnir myndu hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif. Í ljósi þessa og með hliðsjón af gögnum málsins var það mat eftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.