Samkeppni Logo

Kaup Arctic Adventures hf. á ST Holding ehf. og Special Tours ehf

Reifun

Með samrunaákvörðuninni er tekin afstaða til kaupa Arctic Adventures hf. á ST Holding ehf. og Special Tours ehf.

Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum, umsögnum markaðsaðila og rannsókn Samkeppniseftirlitsins liggja ekki fyrir vísbendingar um að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist eða að samkeppni sé raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti svo íhlutunar sé þörf. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er að ekki séu forsendur til að hafast frekar að í málinu.

Ákvarðanir
Málsnúmer

23 / 2024

Dagsetning
9. september 2024
Fyrirtæki

Arctic Adventures hf.

ST Holding ehf.

Atvinnuvegir

Ferðaþjónusta

Samgöngur og ferðamál

Málefni

Samrunamál

Leit