Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Dagsektir vegna brota Teymis hf. á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til bráðabirgða nr. 1/2009

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 4/2009
  • Dagsetning: 4/2/2009
  • Fyrirtæki:
    • Síminn hf.
    • Og fjarskipti ehf.
    • Tal
  • Atvinnuvegir:
    • Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
  • Málefni:
    • Markaðsyfirráð
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl.

    Með bráðabirgðaákvörðuninni mælti Samkeppniseftirlitið fyrir um að fulltrúar Teymis í stjórn Tals skyldu víkja úr stjórninni eigi síðar en 30. janúar sl. Í stað þeirra skyldu síðan skipaðir tveir óháðir einstaklingar, tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu.

    Samkeppniseftirlitið taldi sennilegt í bráðabirgðaákvörðun sinni að fulltrúar Teymis hefðu beitt sér gegn samkeppnislegu sjálfstæði Tals og því væri nauðsynlegt að gera breytingar á stjórn Tals. Ella væri hætta á því að Teymi og Vodafone gætu veikt Tal varanlega sem keppinaut á markaði.  Með háttsemi sinni hefðu Teymi, Vodafone og Tal brotið gegn ákvörðun eftirlitsins um samruna Teymis og Tals frá síðasta ári og ákvæðum samkeppnislaga.

    Samkeppniseftirlitið telur að Teymi hafi virt framangreind fyrirmæli að vettugi. Það liggur fyrir að fulltrúar Teymis í stjórn Tals eru enn stjórnarmenn í félaginu og af því leiðir einnig að þeir einstaklingar sem tilnefndir hafa verið af Samkeppniseftirlitinu hafa ekki verið skipaðir í stjórn Tals. Ljóst er að stjórnendur Teymis hafa á valdi sínu að hlutast til um efndir á fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins en félagið hefur ekki farið að þeim. Telur Samkeppniseftirlitið því að Teymi hafi brotið gegn fyrrnefndri bráðabirgðaákvörðun nr. 1/2009.

    Í því skyni að knýja á um efndir framangreindra fyrirmæla hefur Samkeppniseftirlitið tekið ákvörðun um álagningu dagsekta vegna vanrækslu Teymis. Skal Teymi greiða þrjár milljónir króna á dag þar til bráðabirgðaákvörðuninni hefur verið framfylgt um að núverandi fulltrúar Teymis í stjórn Tals víki úr stjórn og að nýir óháðir einstaklingar verði skipaðir í þeirra stað.