Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Heilsu ehf., á Heilsuhorninu Ninna ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 57/2007
  • Dagsetning: 23/10/2007
  • Fyrirtæki:
    • Heilsa ehf.
    • Heilsuhornið ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Matvörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Þann 21. september 2007 barst Samkeppniseftirlitinu samrunaskrá þar sem tilkynnt var um kaup Heilsu ehf. á öllu hlutafé í Heilsuhorninu Ninna ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fólu kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna, þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gáfu hins vegar ekki til kynna að samruninn myndi raska samkeppni. Í ljósi þessa var það mat eftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.