Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Brot Eignarhaldsfélagsins Sævarhöfða ehf. á tilkynningarskyldu um samruna

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 68/2007
  • Dagsetning: 19/12/2007
  • Fyrirtæki:
    • Sævarhöfði ehf.
    • Birfreiðar og Landbúnaðarvélar
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Vélar og tæki
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi dagsettu 27. september 2007 vakti Samkeppniseftirlitið athygli á því, með vísan til fréttar um að Eignarhaldsfélagið Sævarhöfði ehf. hefði með kaupsamningi dags. 18. júlí sl. keypt allt hlutafé í Bifreiðum og Landbúnaðarvélum hf., að um samruna gæti verið að ræða sem tilkynningarskyldur væri samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið lagði fyrir félagið að tilkynna til eftirlitsins um þennan samruna. Samrunatilkynning barst Samkeppniseftirlitinu þann 8. október 2007 eða tæpum þremur mánuðum eftir að tilkynningarskyldan hófst.  Með því hefur Sævarhöfði brotið gegn tilkynningarskyldu um samruna en samkvæmt 37. gr. samkeppnislaga leggur Samkeppniseftirlitið sekt á félög sem brjóta gegn skyldu til að tilkynna um samruna innan lögbundins frests. Var Sævarhöfða því gert að greiða 1.500.000 krónur í sekt.

Staða máls

Áfrýunarnefnd samkeppnismála

Úrskurðir