Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup SM Fjárfestinga ehf. á IOD ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 24/2007
  • Dagsetning: 20/6/2007
  • Fyrirtæki:
    • SM Fjárfestingar ehf.
    • IOD ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um kaup SM fjárfestinga ehf, á öllu hlutafé IOD ehf. Var lagt mat á það hvort samruninn myndi hindra virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða yrði til eða að slík staða myndi styrkjast. Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að þessi fyrirtæki starfa á ólíkum mörkuðum og að lítil skörun sé á milli þeirra. Það var því mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn myndi ekki hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif og taldi eftirlitið því ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna hans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.