Samkeppni Logo

Ósk um undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga til að gefa út sameiginlegan hámarksökutaxta fyrir bifreiðastjóra sem aka frá leigubifreiðastöðinni Aðalbílum, Reykjanesbæ.

Reifun

Heimild fyrir Aðalbíla, Reykjanesbæ, til að gefa  út hámarksökutaxta. Í ákvörðun þessari veitir Samkeppniseftirlitið Ný-ung ehf. sem rekur leigubifreiðastöðina Aðalbíla, Reykjanesbæ, heimild til útgáfu á hámarksökutöxtum fyrir bifreiðastjóra sem reka leigubifreiðar frá bifreiðastöð félagsins. Heimildin er veitt til eins árs og bundin tilteknum skilyrðum.


Ákvörðunin kemur í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, nr. 4/2006 Afnám á hámarksökutöxtum leigubifreiða sem Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra gefur út, sem birt var 7. febrúar 2006, og ákvörðun nr. 15/2006 þar sem gildistöku fyrrnefndrar ákvörðunar nr. 4/2006 var frestað til 30. júní 2006, ákvörðunum nr. 23/2006 og 25/2006 sem birtar voru 30. júní og 4. júlí sl. þar sem leigubifreiðastöðvunum Hreyfli og BSR var veitt samskonar heimild og Aðalbílum hefur nú verið veitt.

Ákvarðanir
Málsnúmer

29 / 2006

Dagsetning
14. júlí 2006
Fyrirtæki

Aðalbílar

Ný-ung ehf.

Reykjanesbær

Atvinnuvegir

Leigubílaþjónusta

Samgöngur og ferðamál

Málefni

Undanþágur

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.