Ákvarðanir
Kaup Haga hf. á Res ehf.
- Sækja skjal
 - Málsnúmer: 26/2006
 - Dagsetning: 5/7/2006
 - 
                    Fyrirtæki:
                        
                            
- Hagar hf
 - Res ehf.
 
 - 
                    Atvinnuvegir:
                        
                            
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
 - Bygginga- og heimilisvörur (heimilistæki, föt, snyrtivörur)
 
 - 
                    Málefni:
                        
                            
- Samrunamál
 
 - Reifun Nýverið keyptu Hagar hf. sem reka verslanirnar Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams og TopShop, fyrirtækið Res ehf. sem rekur verslanirnar Karen Millen, Warehouse, Shoe Studio, Whistles og All Saints. Um samruna er að ræða í skilningi samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur að ekki myndist markaðsráðandi staða á skilgreindum mörkuðum í kjölfar samrunans eða að slík staða styrkist. Hagar hf. séu að hefja rekstur á verslunum sem starfa á mörkuðum sem fyrirtækið hefur að óverulegu leyti starfað á áður og nokkur samkeppni ríkir á. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að hafast að vegna samrunans.