Samkeppni Logo

Kaup 365 miðla ehf. á útvarpsstöðvunum Kiss FM og XFM af Íslenska útvarpsfélaginu ehf.

Reifun

Með bréfi, dags. 15. janúar 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup 365 miðla ehf. á öllum þeim tækjum sem notuð höfðu verið til reksturs útvarpsstöðvanna Kiss FM og XFM og voru í eigu Íslenska útvarpsfélagsins ehf., ásamt „lógóum“ beggja stöðva og kallmerkjum. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samningurinn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

7 / 2007

Dagsetning
7. mars 2007
Fyrirtæki

365 miðlar ehf.

Kiss FM

XFM

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Ljósvakamiðlar

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.