Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni VGK-Hönnunar hf. og Rafhönnunar hf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 38/2008
  • Dagsetning: 27/6/2008
  • Fyrirtæki:
    • VGK Hönnun hf.
    • Rafhönnun hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
    • Sjálfstætt starfandi sérfræðingar (lögmenn, endurskoðendur, arkitektar, verkfræðingar, dýralæknar, aðrir ráðgjafar)
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi, dags. 7. mars sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna VGK Hönnunar hf. og Rafhönnunar hf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.