Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Opinna kerfa ehf. og Titans upplýsingatækni ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 15/2008
  • Dagsetning: 10/3/2008
  • Fyrirtæki:
    • Opin kerfi ehf. Titan upplýsingatækni ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
    • Upplýsingatækni og hugbúnaðarþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi dags, 4. febrúar, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup Opinna Kerfa ehf. á öllu hlutafé í Títan Upplýsingatækni ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.