Heimild til Leigubifreiðastöðvarinnar Aðalstöðvarinnar, Reykjanesbæ og Hafnarfirði, til útgáfu á hámarksökutöxtum. Í ákvörðun þessari veitir Samkeppniseftirlitið leigubifreiðastöðinni Aðalstöðinni heimild til útgáfu á hámarksökutöxtum fyrir bifreiðastjóra sem reka leigubifreiðar frá bifreiðastöð félagsins. Heimildin er veitt til 1. júlí 2008 og bundin tilteknum skilyrðum.
Ákvörðunin kemur í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2006 Afnám á hámarksökutöxtum leigubifreiða sem Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra gefur út, sem birt var 7. febrúar 2006, og síðari ákvörðunum á árinu 2006 og 2007 þar sem einstökum leigubifreiðastöðvum á takmörkunarsvæði sem afmarkast af höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum var veitt sams konar heimild og Aðalstöðinni er veitt nú.
49 / 2007
Aðalstöðin
Leigubílaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Undanþágur
"*" gefur til kynna skyldusvið