Samkeppni Logo

Kaup Icelandic umbúða ehf. á Valdimari Gíslasyni hf.

Reifun

Hinn 13. mars 2006 barst Samkeppniseftirlitinu tilkynning þar sem fram kemur að Icelandic umbúðir ehf. hafi keypt allan hlut í Valdimari Gíslasyni hf. Af upplýsingum sem fram koma í tilkynningunni er ljóst að samlegðaráhrifa samrunans muni fyrst og fremst gæta við sölu á umbúðum fyrir matvæli, svo sem kjöt og fisk. Þar sem samrunafélögin hafa um árabil séð fyrirtækjum í matvælaiðnaði fyrir umbúðum fyrir bæði kjöt og fisk er ljóst að þau munu styrkja stöðu sína á þessum sviðum viðskipta við samrunann. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif og taldi því ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna hans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.

Ákvarðanir
Málsnúmer

19 / 2006

Dagsetning
14. júní 2006
Fyrirtæki

Icelandic umbúðir ehf.

Valdimar Gíslason hf.

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.