Með bréfi, dags. 13. Mars sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Sundagarða hf. og Borgarnes Kjötvara ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. Og 17. Gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. Gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. Gr. samkeppnislaga.
35 / 2008
Borgarnes Kjötvörur ehf
Sundagarðar hf.
Matvörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið