Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Pennans ehf. og Smára ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 11/2008
  • Dagsetning: 22/2/2008
  • Fyrirtæki:
    • Penninn ehf
    • Smárar ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar samruna Pennans ehf. og Smára ehf.
    Penninn er verslunarfyrirtæki sem selur m.a. bækur, skrifstofuvörur og skólavörur og rekur bæði smásöluverslun og heildsölu. Smárar hefur á hinn bóginn rekið húsgagnaverslunina Habitat.
    Að mati Samkeppniseftirlitsins fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. samkeppnislaga þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.