Með bréfi, dags. 29. febrúar sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. og Rafteikningar hf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
42 / 2008
Rafteikningar hf.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf.
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Sjálfstætt starfandi sérfræðingar (lögmenn, endurskoðendur, arkitektar, verkfræðingar, dýralæknar, aðrir ráðgjafar)
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið