Samkeppni Logo

Samruni Merkúr hf., og Steypustöðvarinnar ehf.

Reifun

Í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um samruna Steypustöðvarinnar hf. og Merkúr ehf. vakti Samkeppniseftirlitið athygli félaganna á lögboðinni tilkynningarskyldu þeirra á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga. Með bréfi, dags. 10. janúar 2007 var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Merkúr og Steypustöðvarinnar. Samrunatilkynning þessi uppfyllti ekki skilyrði þau sem gerð eru til samrunatilkynninga skv. 17. gr. samkeppnislaga og reglna nr. 880/2005, um tilkynningu samruna. Eftir nokkrar ítrekanir á skyldu aðila til þess að skila inn fullnægjandi tilkynningu lagði Samkeppniseftirlitið, þann 28. mars 2007, dagsektir á fyrirtækin vegna vanrækslu á tilkynningu samruna með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 9/2007. Ný samrunatilkynning barst Samkeppniseftirlitinu þann 16. apríl en var í nokkrum atirðum áfátt. Fullnægjandi tilkynning barst loks í maí 2007. Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi ekki í ljós nein atriði sem bentu til þess að samruninn myndi raska samkeppni. Að mati Samkeppniseftirlitsins er því ekki ástæða til þess að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.  

Ákvarðanir
Málsnúmer

38 / 2007

Dagsetning
17. ágúst 2007
Fyrirtæki

Merkúr hf.

Steypustöðin ehf.

Atvinnuvegir

Bygginga- og heimilisvörur (heimilistæki, föt, snyrtivörur)

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.