Samkeppni Logo

Samkeppnishömlur á markaði fyrir leigubifreiðar sem leiða af ákvæðum laga og reglna um leigubifreiðar

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur að undanförnu haft til umfjöllunar nokkur mál sem varða samkeppnisaðstæður á leigubifreiðamarkaðnum.
 
Einu málinu lauk með því að Samkeppniseftirlitið birti samgönguráðherra, af gefnu tilefni, álit (nr. 2/2007) vegna samkeppnishindrandi ákvæða í lögum og reglum um leigubifreiðar. Er því beint til ráðherra að hann beiti sér fyrir því að hinum samkeppnishamlandi lögum og reglugerðum verði breytt þannig að samkeppni fái þrifist á leigubifreiðamarkaðnum til hagsbóta fyrir almenning.

Jafnframt því að beina áliti til samgönguráðherra hefur Samkeppniseftirlitið tekið þrjár ákvarðanir sem varða leigubifreiðar og rekstur þeirra. Í ákvörðun nr. 28/2007 kemst stofnunin að þeirri niðurstöðu að hópur leigubifreiðastjóra sem störfuðu á leigubifreiðastöðvunum BSH í Hafnarfirði og Aðalbílum í Reykjanesbæ hafi haft með sér ólögmætt samráð er þeir sammæltust um að segja upp samningum sínum við bifreiðastöðvarnar. Ákvarðanir nr. 33/2007 og nr. 34/2007 fjalla um undanþágur til eins árs til handa leigubifreiðastöðvunum Hreyfli annars vegar og BSR hins vegar að gefa út hámarksökutaxta fyrir hvora stöð fyrir sig. 

Álit
Málsnúmer

2 / 2007

Dagsetning
28. júní 2007
Atvinnuvegir

Samgöngur og ferðamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.