Samkeppniseftirlitið hefur unnið að greiningu á reiknuðum ábata af íhlutun eftirlitsins vegna samráðs, misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og samkeppnishamlandi samruna. Sú aðferðafræði sem Samkeppniseftirlitið beitir við greininguna byggir á leiðbeiningum frá Efnahags- og framfarastofnuninni (hér eftir OECD) og er fjallað um hana í skýrslu nr. 3/2024, Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins, lýsing á aðferðafræði og forsendum. Niðurstöður greiningarinnar fyrir tímabilið 2013-2022 hafa áður verið birtar í skýrslum nr. 4/2023 og 4/2024. Með þessari skýrslu eru birtar uppfærðar niðurstöður sem ná til og með ársins 2024.
Fylgiskjal: Minnisblað Katrínar Ólafsdóttur dags. 29. apríl 2025, rýni á niðurstöðum ábatamats Samkeppniseftirlitsins
1 / 2025
"*" indicates required fields