
Samkeppniseftirlitið
hefur í dag tekið ákvörðun nr. 2/2024 um heildsölu og dreifingu Símans hf.
á ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Niðurstaða ákvörðunarinnar er að aðhafast
ekki frekar í máli sem leiddi til ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins til
bráðabirgða nr. 30/2023 um sennileg brot Símans á samkeppnislögum með því að ákveða
að hætta að bjóða Nova hf. heildsölu og dreifingu á Símanum Sport sem
inniheldur útsendingar á ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Í
kjölfar ákvörðunarinnar gerði Síminn samning við Nova um heildsölu á Símanum
Sport og hefur lýst því yfir að fyrirtækið muni ekki aftur grípa til sömu
háttsemi gagnvart Nova út gildistíma sýningarréttarins sem er til 30. júní
2025. Meðal annars í ljósi þess og verkefnaálags hjá eftirlitinu hefur
Samkeppniseftirlitið ákveðið ljúka rannsókn málsins án frekari íhlutunar.
"*" gefur til kynna skyldusvið